05.04.1949
Neðri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (3570)

34. mál, fjárhagsráð

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Snemma á þessu þ. bar ég fram með tveim öðrum hv. þdm. frv. til l. um breyt. á l. nr. 70 5. júní 1947, um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit. Það var 34. mál þ. Því var þá vísað til 2. umr. og hv. fjhn. Þegar það síðan hafði legið í langan tíma þar í n., þá kom álit frá minni hl. í byrjun marzmánaðar. En álit frá meiri hl. er eigi komið enn. Vafi leikur á, hvers vegna það sé ekki enn komið fram. Fer ég fram á það við hæstv. forseta, að málið verði tekið á dagskrá á næsta fundi d., þar eð svo er liðið á þingtímann, og reynt að þoka því áleiðis.