19.12.1948
Efri deild: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í B-deild Alþingistíðinda. (366)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Ásmundur Sigurðsson:

Þar sem í þessu frv. felast stórkostlegar álögur á alþýðu manna og skuldaskil á bátaútveginn, sem aftur mundu valda mikilli truflun á rekstri hans, en ákvæði frv. eru ófullnægjandi til þess að tryggja rekstur bátaútvegsins, og hins vegar liggur fyrir þinginu annað frv., sem mundi tryggja rekstur bátaútvegsins, ef það yrði samþ., þá segi ég nei.