24.01.1949
Efri deild: 45. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (3698)
109. mál, manntal
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég skal taka undir það með hv. 1. þm. Reykv., að nákvæmar atvinnuskýrslur, sem hægt er að reiða sig á, vantar mjög tilfinnanlega. Að vísu er hér mjög „fljótandi“ atvinna, þ. e. a. s. tíðum breytingum og umskiptum undirorpin.. Þennan tímann vinnur maður við byggingar, annan tímann í sveit, svo er farið til sjós o. s. frv., þannig að oft er erfitt að fylgjast með þessum tíðu breytingum á atvinnu manna. En það er a. m. k. hægt einu sinni á ári að gera sér ljósa grein fyrir, hvernig atvinnu manna er háttað í landinu, og í 10. gr. þessa frv. er tekið fram, að félmrn. ákveði tilhögun manntalsskránna, sem eiga að innifela handhæga greinargerð um hvern einstakling, eins og stendur í greininni, en að öðru leyti setur ráðuneytið reglur um, hvern fróðleik þær skuli geyma, m. a. er atvinna manna skýrt fram tekin þar. Með því móti er safnað atvinnuskýrslum einu sinni á ári, og ég er sammála hv. 1. þm. Reykv. um, að nauðsynlegt sé að fá þessar skýrslur, enda er þeim oft safnað erlendis. Hins vegar er þess að minnast, að þar er yfirleitt stöðugri atvinnumarkaður en hér á landi og því auðveldara að safna atvinnuskýrslum þar en hér, þar sem menn skipta svo oft um atvinnu.