26.04.1949
Efri deild: 89. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í C-deild Alþingistíðinda. (3807)

138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana

Páll Zóphóníasson: Það sýndi sig við atkvgr., sem fór fram áðan með nafnakalli, að meiri hlutinn — 8:7 af viðstöddum þm. voru með því að ákveða lengri vinnutíma hjá opinberum starfsmönnum. En það er á valdi fjmrh. að breyta þarna um með reglugerð, og í trausti þess, að hann sýni nú þann mannskap, segi ég já.