16.05.1949
Neðri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (3838)

138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana

Jón Pálmason:

Ég tel, að í meðferð þingsins sé búið að eyðileggja þetta frv. svo, að litlir möguleikar eru á því, að gagn verði að því, eða það gagn, sem hæstv. fjmrh. ætlaðist til, að það mundi hafa, er hann lagði það fram, og vil ég því láta þá, sem málinu hafa spillt, um að sjá um það áfram, og þess vegna greiði ég ekki atkv.