14.12.1948
Neðri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í C-deild Alþingistíðinda. (3884)
38. mál, útrýming minka
Jörundur Brynjólfsson:
Mig furðar á svörum hv. form. landbn. og hvernig hann svarar þeim. Það hefur verið sá háttur á hafður, þegar mál hafa verið þrautrædd og upplýst, að n. hafa ekki gert sér það að leik að tefja þau. Allir vita, að þetta mál er vel upplýst og þrautrætt, og vil ég beina til hæstv. forseta, að mál þetta komi fljótlega til meðferðar og fái góða afgreiðslu, og mun ég ekki taka nein svigurmæli sem góða og gilda vöru í þeim efnum.