18.02.1949
Neðri deild: 67. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í C-deild Alþingistíðinda. (3957)

98. mál, atvinna við siglingar

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það kom hér fram ósk í gær þess efnis, að frsm. n. hlutaðist til um það við hæstv. ríkisstj., að hún lýsti því yfir, að ákvæðin um réttindi vélstjóra yrðu endurskoðuð. Hæstv. siglmrh. sagði, að það væri vilji sinn, en þetta mál virðist heyra undir þrjú ráðuneyti, og verður því að álykta, að ef slík endurskoðun sé tryggð, þá væri heppilegra að bæta því aftan við lagagr. til tryggingar því, að það verði gert.