18.02.1949
Neðri deild: 67. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í C-deild Alþingistíðinda. (3958)

98. mál, atvinna við siglingar

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Varðandi brtt. hv. 2. þm. Reykv., þá er ekki víst, að sú till. flýti nokkuð fyrir afgreiðslu þessa frv. Ef till. yrði samþ. hér, en síðar felld í hv. Ed., þá ætti ríkisstj. erfiðara með að láta endurskoðunina fara fram. Ég vildi leggja til, að þessi till. yrði ekki samþ. að svo stöddu. Það væri nóg að taka þetta til athugunar síðar, þegar l. hafa verið endurskoðuð. En að setja þetta í frv. núna, getur aðeins tafið fyrir frv. Þetta vildi ég benda hv. þm. á, þó að ég sé honum algerlega sammála varðandi brtt.