12.05.1949
Efri deild: 104. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í C-deild Alþingistíðinda. (3986)

98. mál, atvinna við siglingar

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég tel rétt, að í 3. gr. sé breytt orðunum „1. jan. 1950“ og í staðinn komi: 1. okt. 1949. Það hefur komið fram, að nauðsynlegt sé að hraða endurskoðun, og ber ég því hér fram skriflega brtt. við þetta atriði, sem ég legg fyrir hæstv. forseta.