02.11.1948
Efri deild: 7. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (4)

26. mál, happadrættislán ríkissjóðs

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta er lagt fram til staðfestingar á bráðabirgðalögum áður útgefnum, og í raun og veru eru framkvæmdirnar búnar, að minnsta kosti fyrsta atrennan. N. er með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Fyrirsögn frv. skiptir í sjálfu sér litlu, en það virðist vera óþarfi að hafa þetta fyrirhugað og gæti komið til mála að láta það falla niður. Kannske verður síðar flutt um það brtt. við 3. umr.