29.04.1949
Efri deild: 91. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í C-deild Alþingistíðinda. (4031)
108. mál, Framfarasjóður búnaðarsambanda
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Í þeirri upphæð, sem Búnaðarfélag Íslands fær, eru 170 þús. kr., sem veittar eru til búnaðarsambandanna. Í þessu frv. er farið fram á 300 þús. kr. framlag í Framfarasjóð íslenzkra búnaðarsambanda. Ég hygg, að það hafi vakað fyrir flm., að þar með væri talin þessi upphæð, 170 þús. kr. Mér þykir rétt að benda á þetta, áður en málið fer í n., og vænti þess, að hv. landbn. taki það til athugunar, hvort eigi sé rétt, að af þessari upphæð skuli ganga fé Búnaðarfélagsins í sjóðinn, svo að upphæðin lækki í 130 þús. kr. nema ætlunin sé að greiða í sjóðinn 300 þús. kr. úr ríkissjóði auk hins, sem er framlag Búnaðarfélagsins. Að öðrum kosti þarf að taka það fram í frv., hvort þetta viðbótarfé er aðeins hluti af því, sem á að fara í þennan sjóð, eða ekki.