08.03.1949
Neðri deild: 77. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (4096)

152. mál, ullarmat

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Af því að form. landbn. er ekki viðstaddur, þá verð ég að segja það, að þótt leitt sé, hefur landbn. ekki haft tíma til þess að athuga þetta mál. Af þessum sökum var málið tekið af dagskrá síðast, þegar það var á dagskrá. Og ég vil einnig fara fram á það nú, að það verði tekið af dagskrá.