25.11.1948
Efri deild: 20. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í C-deild Alþingistíðinda. (4212)

78. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (BSt) :

Sökum þess, hvernig á stendur fyrir hv. flm., en hann er á förum til útlanda í erindum hæstv. ríkisstj., vildi ég óska þess, að þessu máli yrði vísað til 2. umr. og n. á þessum fundi. Ég vildi því biðja hv. þm. að halda sér sem mest að efni þess. (PZ: Ég er „dauður.“) Ég er ekki að álasa neinum, en mér skilst, að umr. hafi farið nokkuð út fyrir þrengsta efni frv.