25.11.1948
Neðri deild: 21. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (43)
26. mál, happadrættislán ríkissjóðs
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Frv. þetta fjallar um það, ef fjmrh. ákveður að nota lántökuheimild ríkissjóðs með happdrættisláni, að þá skuli allir vinningarnir, sem upp koma, vera undanþegnir sköttum nema eignarskatti. Ég tel nú vera varhugavert að ganga lengra á þeirri braut að undanþiggja vissa aðila sköttum, en komið er. Hins vegar veit ég, að margir þm. eru meðmæltir þessu, en í nál. fjhn. er bent á, að nauðsynlegt sé, að þeir, sem njóta skattfrelsis vegna þess, að þeir hafi hlotið happdrættisvinning, geti sannað vinning sinn með vottorði. Ef eignaraukning kemur fram á því ári, mun það venja, að hún sé í samræmi við tekjuaukninguna, og áætlar skattanefnd skattana eftir því. Ef nú tekjur eiga sér stað, sem ekki er skylt að telja fram, getur framtal þeirra, sem hlotið hafa happdrættisvinning, sýnt óeðlilega eignaraukningu á árinu, sem ekki kemur fram í tekjuframtalinu. Það er því nauðsynlegt fyrir skattanefndir, að menn geti fært sönnur á tekjurnar. Ég vil því spyrja. hæstv. fjmrh., hvort hann vilji setja í reglugerð ákvæði um það, að þeir, sem vinning fá í happdrættisláninu, geti fengið vottorð fjmrn. fyrir því, að þeir hafi hlotið vinning. Ég vildi fá að heyra álit hæstv. ráðh. um þetta.