02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (4369)

22. mál, landbúnaðarvélar

Forseti (JPálm):

Mér hefur borizt svohljóðandi till. frá hv. þm. Ísaf.: „Legg til, að máli þessu verði vísað til ríkisstj.“ — Út af þessari furðulegu ræðu hv. 4. þm. Reykv., sem hann hélt hér í tíu mínútur og ég gat ekki skilið annað en væru fyrst og fremst ásakanir til forseta fyrir að hafa tekið þessa þáltill. fyrir, þá sé ég ekki ástæðu til að taka við slíkum áminningum, sízt í máli, sem búið er að halda 20–30 ræður í alls og ekki er flókið.