02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (4370)
22. mál, landbúnaðarvélar
Frsm. (Ingólfur Jónsson):
Ég vil taka undir það, að þetta mál, sem hv. 4. þm. Reykv. er að tala um nú, var svo að segja útrætt, og áleit Sjálfstfl. að svo væri, eftir að allshn. átti tal við hæstv. viðskmrh. í morgun og búið var líka að ræða málið á einum fundi áður. Hvorki ég né aðrir flm. gerðum ráð fyrir umr. um hana að verulegu leyti í kvöld. Sjálfstfl. hefur leyft sér að hafa flokksfund í kvöld. Man ég ekki betur, en annar þingflokkur hefði flokksfund í fyrra kvöld, en hv. 4. þm. Reykv. fannst ekki taka því þá að bjarga Alþ. Þetta er líklega vegna þess, að nú á Sjálfstfl. í hlut. Ekki veit ég, hvað þær getsakir eiga að þýða, að tala um meiningarleysu með flutningi till. hér á Alþ., þó að ekki séu allir flm. viðstaddir, eftir að raunverulegum umr. er lokið. Og í fyrra kvöld þagði hv. 4. þm. Reykv., þegar heill þingflokkur hélt flokksfund meðan fundur var í Sþ. (GÞG: Ég vissi ekki af því).