29.03.1949
Sameinað þing: 58. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í D-deild Alþingistíðinda. (4410)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Forseti (JPálm):

Þessi umræða hefur nú staðið alllengi, og þar að auki hefur allýtarlega verið rætt um þetta mál í útvarpsumr. Og það er lögð á það mikil áherzla að hraða a. m. k. þessari fyrri umr. málsins. Ég vil því ákveða fyrst um sinn, að ræðutími þingmanna verði takmarkaður við 15 mínútur.