29.03.1949
Sameinað þing: 58. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (4441)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Jónas Jónsson:

Þar sem það er orðið ljóst, sem flm. var víst ekki kunnugt, að Rússland gerði samninga við fimm þjóðir í vestri, en tók þær allar herskildi, tel ég það bera vott um vöntun á sögulegum skilningi að samþ. þessa dagskrá og segi því nei.

Brtt. 506 tekin aftur til síðari umr.

Tillgr. samþ. með 33:10 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Till. vísað til síðari umr. með 37:9 atkv. og til utanrmn. með 43 shlj. atkv.