18.05.1949
Sameinað þing: 76. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í D-deild Alþingistíðinda. (4551)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Forseti (JPálm.):

Ég vil taka fram út af ósk hv. 1. þm. Eyf., að það er eftir beiðni hæstv. ríkisstj., að ég ætla nú í nótt að fá úr því skorið, hvort þessi till. kemst til n. eða ekki. Á morgun er nóg að gera, því að þá eru þinglausnir. Ég vil samt biðja þá hv. þm., sem eftir eiga að tala, að lengja ekki umr. um of og vera frekar stuttorða.