18.05.1949
Sameinað þing: 76. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í D-deild Alþingistíðinda. (4564)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Eiríkur Einarsson:

Ég geri ráð fyrir, að till., eins og hún liggur fyrir, sé undan rifi hæstv. ríkisstj. runnin, ef ekki báðum. Ég vil prófa, hvort hún er ekki undan báðum rifjum hennar runnin, og því prófi fæ ég ekki framgengt, nema málið komist lengra, og þess vegna segi ég nei.