27.01.1949
Efri deild: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (470)

36. mál, útflutningur og innflutningur á íslenskum og erlendum gjaldeyri

Gísli Jónsson:

Síðast þegar þetta mál var til umr., var gerð fyrirspurn til flm. og n. um það, hvort væri ekki betra að afgr. annað frv. hér um leið, sem er breyt. á þessum sömu l. Við 1. umr. málsins viðurkenndi hæstv. viðskmnh., að eðlilegra væri, að stjfrv. og hitt frv. yrðu tekin fyrir sameiginlega til afgreiðslu, og skildist mér, að það væri hans ósk. Og var málinu frestað vegna þess, að flm. að því frv. var ekki viðstaddur og þess vegna ekki hægt að afgr. málið, og vildi ég spyrja hv. frsm., hvort ekki hefði komið til athugunar að afgr. þessi mál saman, af því að þau eru um breyt, á sömu l.