27.01.1949
Efri deild: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (471)

36. mál, útflutningur og innflutningur á íslenskum og erlendum gjaldeyri

Frsm. (Hermann Jónasson):

Jú, það kom til tals, en svo varð ekki af því, enda ekki beint nauðsynlegt að gera það. Ég man nú ekki svo, hvernig umr. féllu um þetta í n. En þegar þetta mál var tekið fyrir, var flm. hins frv. erlendis, en mál þetta var þó látið ganga sína venjulegu afgreiðsluleið. En síðan hefur þetta mál verið tekið á dagskrá, án þess að hitt málið væri við það tengt, en það er auðvitað á valdi þessarar hv. d., hvort tengja skuli þessi mál saman eða ekki.