02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í D-deild Alþingistíðinda. (4755)

62. mál, framleiðsla raftækja innanlands

Forseti (JPálm):

Út af aðfinnslum hv. 2. þm. Reykv. vil ég vekja athygli á því, að þetta er aðeins fyrri hluti umr., og er ætlazt til, að þessari till. sé vísað til n. og þar fari fram athugun á því, hvort nokkurt samkomulag er um að afgr. slíka till., en vegna þess, hve mikið er borið fram af þáltill. og fyrirspurnum í Sþ., þá sé ég ekki ráð til að koma þeim áleiðis án þess að halda kvöldfund, án tilllts til, hvort hv. þm. eru almennt viðstaddir.