07.02.1949
Efri deild: 55. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

36. mál, útflutningur og innflutningur á íslenskum og erlendum gjaldeyri

Björn Ólafsson:

Herra forseti. Mig langar til að vekja athygli á því, að þegar þetta mál var til 2. umr., virtist það vera álit d., að rétt væri að láta þetta frv. bíða þar til annað frv., sem liggur í fjhn., er komið til afgreiðslu, og gætu þau frv. orðið samferða. Ég vildi gera það að till. minni, að málið yrði nú tekið af dagskrá.