25.02.1949
Sameinað þing: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í D-deild Alþingistíðinda. (4819)

73. mál, Kaldaðarnes í Flóa

Jónas Jónsson:

Hæstv. landbrh. hefur ekki, sem von var, gefið skýringuna á aðalatriðinu í þessu máli. Þeir menn, sem hv. varaþm. N-Ísf. kallar aumingja og sviptir voru því hæli, sem þeir áttu í Kaldaðarnesi, eru á ábyrgð þessara manna og alveg sérstaklega þessa hræsnara frá Ísafirði. Er hann að þakka fyrir atkvæðin frá framsóknarmönnum um árið með þessum málflutningi sínum nú?