03.12.1948
Neðri deild: 26. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (486)

9. mál, skyldueintök til bókasafna

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Þetta frv. er fylgihnöttur málsins, sem nú var verið að afgreiða, sem var frv. til l. um landsbókasafn. Það er samið af sömu nefnd og undirbjó frv. um landsbókasafn, og menntmn. hefur fjallað samtímis og á sama hátt um bæði þessi mál. Leggur menntmn. því eindregið til, að þetta frv. verði samþ. óbreytt.