22.04.1949
Sameinað þing: 67. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í D-deild Alþingistíðinda. (4868)

121. mál, ríkishlutun um atvinnurekstur

Forseti (JPálm):

Út af aths. hæstv. forseta Ed., sem er réttmæt, skal ég taka það fram, að ég hef ekki hugsað mér að tefja fyrir d. meira, en nauðsyn krefur. Af fundum Sþ. hafa 17 aðeins verið til þess að leyfa fsp., og því ekki tekið tíma. Hitt er rétt, starf þingsins er fyrst og fremst löggjafarstarf.