27.04.1949
Sameinað þing: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í D-deild Alþingistíðinda. (4936)

165. mál, lyfjainnflutningur til dýralækninga

Sigurður E. Hlíðar:

Herra forseti. Á þskj. 465 á ég ásamt 1. þm. N-M. till. til þál., sem er nú búin að liggja lengi án þess að fá afgreiðslu, og þar sem till. fer ekki fram á nein ósköp, þá skil ég ekki, en þykir einkennilegt, hvað afgreiðsla hennar hefur dregizt lengi. Leyfi ég mér því hér með að bera fram fyrirspurn til hæstv. forseta um það, hvað þessu veldur og hvort ekki muni vera hægt að hraða málinu.