04.11.1948
Sameinað þing: 13. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í D-deild Alþingistíðinda. (4998)

51. mál, vegamál

Jóhann Hafstein:

Ég mun greiða atkv. á móti þessum fyrirspurnum, og er það ekki af hræðslu við þær, heldur vegna þess, að ég tel, að tíma þingsins sé um of eytt í fyrirspurnir. Ég segi því nei.