02.12.1948
Sameinað þing: 23. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í D-deild Alþingistíðinda. (5158)
917. mál, fæðingardeild landsspítalans
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég fer nú að gruna hv. 7. þm. Reykv. um græsku. Ég held, að eitthvað annað vaki fyrir honum, en að fá réttar upplýsingar um málið, og þykir mér hann taka ósanngjarnlega fyrirgreiðslu minni í svörum.
1. spurning er svona: „Hvenær var upphaflega ráðgert, að fæðingardeild Landsspítalans gæti tekið til starfa í hinni nýju byggingu deildarinnar?“ Ég hef beðið menn að athuga þetta, og þeir hafa ekki fundið neinn ákveðinn tíma. Deildin skyldi taka til starfa, þegar byggingunni væri lokið. Nú heimtar hv. 7. þm. Reykv., að ég finni einhverjar ráðagerðir, sem ekki eru fyrir hendi. Nú, 2. spurningin er svo hljóðandi: „Hvað hefur tafið það, að deildin tæki til starfa, og hvað tefur enn?“ Ég gaf þær upplýsingar, að byggingunni hefði verið lokið í ágúst, og orsakanna til þess, að deildin er ekki enn tekin til starfa, gat ég með almennum orðum, en ef það vakir fyrir hv. þm. að láta fara fram rannsókn á öllu málinu til þess að fá úr því skorið, hvaða afsakanir séu réttar eða ekki réttar, þá þarf mjög ýtarlega rannsókn, og gerði ég ekki ráð fyrir því. Það er náttúrlega rétt, að deildin er ekki enn tekin til starfa, en ég hef þegar getið orsakanna til þess, en þar er fyrst og fremst um starfsfólksskort að ræða. Hv. þm. segist efast um, að við landlæknir höfum rekið á eftir málinu sem skyldi. Hann ætti að spyrja hv. borgarstjóra að því, hvort ég hefði gert nokkuð til að hraða málinu. Hann ætti að geta upplýst hv. þm. um það atriði.