02.12.1948
Sameinað þing: 23. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í D-deild Alþingistíðinda. (5168)

918. mál, ríkisskattar samvinnufélaganna

Skúli Guðmundsson:

Ég get vel skilið þessi tilmæli hæstv. fjmrh. til hæstv. forseta, ef slík fyrirspurn kæmi fram, enda sagði ég, að það yrði meira en vikuverk að finna þetta út. Það var aðeins það, sem ég sagði, og ég vil halda því fram, að það sé rétt athugað, að þessi prósentureikningur hæstv. ráðh. hafi lítið gildi, meðan sá mikli útreikningur liggur ekki fyrir, sem hann var nú að benda mér á, að ég gæti óskað eftir með því að bera fram fyrirspurn til viðbótar.