08.12.1948
Sameinað þing: 25. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í D-deild Alþingistíðinda. (5178)
87. mál, tekjur og ríkisskattar samvinnufélaganna o.fl.
Sigfús Sigurhjartarson:
Ég vildi spyrjast fyrir um það, hverju það sætir, að 1. mál á dagskrá er ekki tekið fyrir, en mér skilst, að samkv. þingsköpum beri að afgr. það mál í dag og eigi síðar. Ég hef mikinn áhuga fyrir að fá þessu svarað og býst við, að þess megi þá vænta, að mér og öðrum hv. þm. væri ekki synjað um hliðstæðar upplýsingar um ýmis merk fyrirtæki í landinu, sem við kynnum að fá áhuga fyrir að vita eitthvað um.