02.11.1948
Efri deild: 7. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í B-deild Alþingistíðinda. (52)

11. mál, skemmtanaskattur

Frsm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Frv. þetta er aðeins framhald á ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Það er ekki um neinar breytingar að ræða, nema ekki er krafizt skattauka af íslenzkum kvikmyndum. N. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ.