02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í D-deild Alþingistíðinda. (5226)

923. mál, öryggi á vinnustöðum

Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég hef hér á þskj. 286 leyft mér að bera fram fsp. þess efnis, hvað undirbúningur frv. til l. um öryggisráðstafanir á vinnustöðum hefur kostað, hvernig sá kostnaður skiptist, til hvaða aðila greiðslurnar hafa farið og hve mikið til hvers aðila.