09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í D-deild Alþingistíðinda. (5293)
146. mál, klak í ám og vötnum
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):
Herra forseti. Það er ástæða til að þakka þessa skýrslu, ef málefni eru eins skýr og skýrslan er löng. Það er sýnilegt, að allur kostnaður í sambandi við þessi mál hefur aukizt mjög mikið, síðan hinn ungi kunnáttumaður tók við þessu starfi sínu, en hins vegar hefur ekki komið í ljós neinn sýnilegur árangur af hans starfi. Félög, sem stofnuð hafa verið af fyrirrennara hans, lifa sum allvel, en heldur sýnist það ósennilegt, að hinn nýi maður sé fjörugur að halda þeim við, sem stofnuð eru. Þá hefur komið í ljós, að nokkur kostnaður er frá fiskideildinni. Á sínum tíma reyndum við í Þingvallanefnd að fá Árna Friðriksson fiskifræðing til þess að sinna nokkru um silungsrannsóknir í Þingvallavatni, en aldrei hefur komið til Þingvallanefndar nein vitneskja, sem nokkurs var virði. En það er annars mjög einkennilegt, að þegar nýr kunnáttumaður kemur, þá er hann fluttur út úr fiskideildinni, og það er einnig mjög einkennilegt, að það lítur út fyrir að hann hafi orðið að kaupa með sér bækur út úr fiskideildinni.
En þannig fór, eins og ég bjóst raunar við, að þessi ungi maður komst að þeirri niðurstöðu, að laxar gætu lifað í ám fyrir ofan fossa, en það hafa nú verið talin heldur lítil vísindi fram að þessu, heldur virðist hann vera að tylla sér á tá með þessu. Þeir eru með ráðagerðir um vísindalegar framkvæmdir, þessir menn, en þessir sömu menn, sem að vísindalegu framkvæmdunum eiga að vinna, þeir dveljast hér í Reykjavík tíu mánuði ársins, en taka sér svo smásumarferð út um sveitir til þess að skoða laxinn. En ef sami árangur næst af þeirri skoðun og fékkst í Þingvallavatni forðum, þá held ég, að ekki verði hægt að byggja mikið á honum.
Hæstv. atvmrh. vil ég svo segja þetta: Þessi athugun eða áætlun, sem rafmagnsfræðingarnir gerðu um kostnað við fiskveginn, hefur ekki við neitt að styðjast, því að rafmagnsfræðingar hafa ekkert vit á því, hvað laxastigar kosta. Það er enginn maður hér á landi, sem gæti gert þessa kostnaðaráætlun, og í öðru lagi vil ég benda á, að ef veitt er leyfi til aukinnar virkjunar þarna, þá er búið að eyðileggja klakið fyrir þessum mönnum, ef ekkert verður að gert, og verður því ríkisstj. að beita sér fyrir því, að þetta verði lagfært.