24.02.1949
Sameinað þing: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í D-deild Alþingistíðinda. (5298)

930. mál, bygging fornminjasafns

Pétur Ottesen:

Ég vildi bara gera þá fyrirspurn til þess hv. ræðumanns, sem hreyfði hér andmælum gegn leyfi fyrir fyrirspurn nr. II á þessu þskj., sem hér er um að ræða, hvort þau andmæli gildi fyrirspurnina í heild eða einstaka liði hennar. Ég sé ekki ástæðu til að vera á móti því að leyfa 1. og 2. liðinn. Ég veit ekki, hvers konar einvaldsherra menn vilja leika hér á Alþ., þar sem ríkir bæði lýðræði og þingræði.