09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í D-deild Alþingistíðinda. (5338)

151. mál, nefndir launaðar af ríkinu

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Það er í rauninni vegna verkbragðanna við þetta, að ég kvaddi mér hljóðs. Vildi ég skýra frá því, að upplýsinga er eigi unnt að afla í fljótu bragði. En jafnskjótt og þær liggja fyrir, þá mun þessu verða svarað. En allmiklar upplýsingar liggja fyrir hjá hv. fjvn. Ég hef komið af stað athugun á þessu, en ekkert svar er að fá hjá mér enn þá. Vil ég spyrja hv. fyrirspyrjanda, hvort hann samþykki eigi, að fyrirspurn þessi sé tekin af dagskrá, þar til kleift mun að afla frekari upplýsinga.