09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í D-deild Alþingistíðinda. (5353)

934. mál, Úlfarsá í Mosfellssveit

Fyrirspyrjandi (Finnur Jónsson):

Herra forseti. Ég vil ganga úr skugga um, hver aðstaða er til að reka drykkjumannahæli á Úlfarsá, því að mér hefur verið sagt, að ætlunin væri að koma þar á fót þessu hæll. Annars þarf ég eigi frekara að fylgja þessu úr hlaði og óska svara hæstv. ráðh.