09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í D-deild Alþingistíðinda. (5359)

935. mál, leiga á jarðhúsum

Fyrirspyrjandi (Finnur Jónsson):

Það hefur verið upplýst á Alþingi, að teknar hafa verið á leigu kartöflugeymslur við Elliðaár fyrir 175 þús. kr. á ári til fimm ára. Þar sem ekki liggur fyrir nein lagaheimild um þessa framkvæmd, hef ég leyft mér að bera fram þessa fyrirspurn til að fá úr því skorið, hvort öll ríkisstj. hefur tekið þessa ákvörðun.