09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í D-deild Alþingistíðinda. (5361)
935. mál, leiga á jarðhúsum
Fyrirspyrjandi (Finnur Jónsson):
Ég fékk í lokin hjá hæstv. atvmrh. svar við því, sem ég spurði um, og vil þakka fyrir það.
Viðvíkjandi lagaheimild til þess að gera slíka ráðstöfun, þá skal ég ekki fara út í það, en ég hygg, að mér sé óhætt að fullyrða, og það hefur komið í ljós, að forstjóri grænmetisverzlunarinnar hafi fyrir sitt leyti ekki viljað gera þessa ráðstöfun, jafnvel talið, að þær geymslur, sem um er að ræða, séu alls ekki heppilegar sem kartöflugeymsla, og að hann hafi enn síður viljað taka þá fjárhagslegu ábyrgð á grænmetisverzlunina, sem þessi samningur fól í sér.