09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í D-deild Alþingistíðinda. (5371)

936. mál, riftun kaupsamnings um Silfurtún

Fyrirspyrjandi (Finnur Jónsson):

Annaðhvort hef ég ekki heyrt, hvað hæstv. ráðh. sagði, eða hann hefur ekki svarað fsp. Hún er um það, hvort kaupin á trésmíðaverkstæðinu hafa verið borin undir alla ríkisstj., og ef svo er, hvaða afstöðu ráðh. hafa haft til málsins. Mér var áður kunnugt um leigumálann, en vil vita, hvort kaupin sjálf hafi verið borin undir alla ríkisstj.