16.03.1949
Sameinað þing: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í D-deild Alþingistíðinda. (5425)

940. mál, rafmagnsverð

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir góð svör, en vildi aðeins spyrjast fyrir um það hjá hæstv. ráðh., hvað valdi því, að Sandgerðisbúar einir hafa farið þá leið að leggja meira á rafmagnið, en aðrir.