06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í D-deild Alþingistíðinda. (5447)
171. mál, slys á Keflavíkurflugvelli
Fyrirspyrjandi. (Áki Jakobsson):
Ég skal ekki hafa mörg orð um þessa fyrirspurn. En eins og menn muna, hafa oftar en einu sinni komið til umræðu í blöðum slys og aðrir óvenjulegir atburðir í sambandi við flugvélar, sem ýmist voru að fara af stað eða koma. En ekki hafa fengizt opinberlega nægilega skýrar hugmyndir um þetta, svo að ég óska að fá upplýsingar um, hve mikil brögð hafa verið að slíkum misfellum og hvað gert hafi verið í málinu.