20.04.1949
Sameinað þing: 66. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í D-deild Alþingistíðinda. (5489)

947. mál, stöðuveitingar við atvinnudeild háskólans

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði búizt við því, að hæstv. ráðh. svaraði því beint, sem ég spurði um, hvort hann hefði ekki litið á þessar skýrslur áður en hann las þær upp hér á Alþ. Eða hefur hann látið sér nægja að bjóða Alþ. upp á þetta án þess að gagnrýna það sjálfur? Það væri ákaflega æskilegt, að forseti gæfi viðkomandi ráðh. bendingu um það, að betra væri að athuga þessi gögn, áður en þeir flytja svona lagað á Alþ. í fyrirspurnatíma, því að til þess hefur aldrei verið ætlazt.