24.02.1949
Neðri deild: 70. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (550)

14. mál, kyrrsetning og lögbann

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Í sambandi við þetta frv. vildi ég taka það fram, að nefndin hefur athugað það og fallizt á að mæla með því, að það verði samþykkt óbreytt að öðru leyti en því, að áður var gildistaka laganna miðuð við 1. janúar, en n. leggur til, að miðað verði við 1. júní 1949. Annað þarf ég svo ekki að taka fram af hálfu n. varðandi þetta frv.