06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í D-deild Alþingistíðinda. (5509)
946. mál, húsameistara- og eftirlitsstörf við nokkur stóhýsi
Gísli Jónsson:
Mér þykir rétt í tilefni af þessum upplýsingum að minna á, er hæstv. atvmrh. var að gera veður út af því, hvað mér hefði verið greitt fyrir umsjón með togarakaupunum fyrir ríkisins hönd. Það voru 300 þús. kr., sem ég fékk fyrir umsjón með smíði 30 togara, á móti 144 þúsundum hér fyrir umsjón með smíði eins húss, og er þá ekki reiknað með því, sem greitt hefur verið fyrir teikningar hússins.