25.02.1949
Neðri deild: 71. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (553)

14. mál, kyrrsetning og lögbann

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég vildi aðeins vekja athygli á því, að í framhaldi af gildistöku l. sjálfra er í 33. gr. frv., fyrri málsgr., miðað við 1. júní 1949. Nú hefur í seinni málsgr. láðst að breyta þessu, þannig að þar er miðað við 1. jan. 1949, eins og þetta var upphaflega í frv. Mér virðist sem þetta leiðréttist hvað af öðru og vildi spyrjast fyrir um það, hvort ekki mætti leiðrétta þetta, án þess að fram komi um það sérstök brtt.