25.11.1948
Efri deild: 19. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í C-deild Alþingistíðinda. (5531)
76. mál, jeppabifreiðar
Flm. (Páll Zóphóníasson) :
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa um þetta mál langa framsögu, því að í grg. hef ég tekið fram þau atriði, sem hér skipta máli. — Eins og menn sjá, fer þetta frv. fram á, að ríkisstj. hlutist til um, að til landsins verði fluttar 6 jeppabifreiðar og þær verði látnar til þeirra aðila, sem um ræðir í frv. Mér er ljóst, að fyrir dyrum stendur, ef gjaldeyrisástæður leyfa, að flytja inn það margar jeppabifreiðar, að vissa er fyrir því, að þær verða fleiri, en þessar 6. En þetta horfir þannig við, að óvíst er, hvort gjaldeyrir verður til, til innflutnings jeppabifreiða og í öðru lagi hver ræður, hverjir þær fá. Nú er það svo, að þegar ég tek þessar 6 bifreiðar, þá er það af þeim ástæðum, að þörfin fyrir þær er önnur heldur en fyrir þá tugi af mönnum, sem skrifa mér og biðja mig að útvega sér jeppa, það eru allt einstaklingar, sem ætla að nota þetta fyrir sjálfa sig, en hér er um samtök margra bænda að ræða, sem þurfa á því að halda að geta leyst af hendi það starf, sem þar er verið að vinna. Þessir aðilar snerta mig og mitt starf að því leyti, að hægt er að koma á frekar, en ella kynbótum á nautgripum. Ég get bæði hugsað mér þá afgreiðslu á þessu máli, að það verði samþ., og einnig, að það verði afgr. með rökstuddri dagskrá, þar sem því væri treyst, að þessir aðilar fengju innflutning á jeppum, ef hægt væri að flytja þá til landsins vegna gjaldeyrisástæðna, því að með því væri því slegið föstu, að þessir aðilar ættu að koma í fremstu röð. Það mætti kannske deila um það, í hvaða n. þetta mál ætti að fara, en ég flyt þetta fyrst og fremst sem landbúnaðarmál, og þess vegna held ég, að það eigi að fara í landbn. Það orkar ekki tvímælis, að í sambandi við þessar 6 bifreiðar þá er þar um að ræða þörf heildarinnar fyrst og fremst. Það nær t. d. ekki nokkurri átt, að þegar byrjað er að sæða núna í Borgarfirðinum, þá verði að flytja sæðið á leigubifreiðum. Ég held, að kostnaðurinn kæmist upp í 200 kr. á kú, ef nota ætti leigubifreiðar, en það er þó ekki nema 40 kr. nú í Eyjafirðinum, þó að það sé dýrt, af því að þeir þurfa að nota ónýtan jeppa, sem kostar í rekstri geysilegt fé. — Ég ætla svo ekki að fjölyrða frekar um málíð að sinni.