08.03.1949
Efri deild: 72. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (560)

14. mál, kyrrsetning og lögbann

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. Nd. hefur gert smávægilega breyt. á þessu frv., og hefur allshn., eftir að hafa athugað breyt., ekki séð ástæðu til að gera neinar athugasemdir og leggur því til, að frv. verði samþ. eins og það er. Mér þykir rétt að taka þetta fram, þar sem málið liggur hér fyrir til einnar umr.