28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (733)
16. mál, áburðarverksmiðja
Frsm. meiri hl. (Eiríkur Einarsson):
Herra forseti. Svo sem ráð var fyrir gert við 2. umr. þessa máls, þá hefur nú landbn. haft fund með sér vegna þeirra brtt., sem fram hafa verið bornar við frv., til að færa þær til miðlunar við nefndarafstöðuna, eins og hún lá þar fyrir, með tilvísun til ummæla hæstv. ráðh., sem komu til greina á sama hátt. Og þessi fundur n. og samráð við hæstv. ráðh. hafa orðið til þess, að brtt. við frv. eru á leiðinni sem niðurstaða af þeim samræðum og samkomulagsviðleitni um málið. En samningar um þessar brtt. og lokaumr., sem að þessu lutu, hafa ekki getað orðið fyrr á ferðinni en svo, að þessar brtt. eru í þann veginn að komast í prentun nú. Þykir hentara að láta þær liggja fyrir prentaðar við umr. en að koma fram með þær skrifl. Og með tilliti til þessa er það ósk mín við hæstv. forseta, að hann fresti umr. nú um þetta mál, og með því loforði, að brtt. sé flýtt í prentun og geti þá legið fyrir á morgun hreinprentaðar.